Fréttir

Tilkynningar

Viðburðir

23.04.2024 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
24.04.2024 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
24.04.2024 kl. 12:15 - Gerðarsafn

Sjálfsmyndir og minningar

Gunnþórunn Guðmundsdóttir bókmennafræðingur fjallar um minningar, sjálfsmyndir og tengsl þeirra við efnislega hluti í hádegisspjalli á Gerðarsafni. Erindið er haldið í tilefni af sýningu Sóleyjar Ragnarsdóttur, Hjartadrottningu, þar sem servíettusöfn allt frá miðri síðustu öld mynda hugmyndalegan grunn sýningarinnar. Fyrirlestur Gunnþórunnar fer fram inni i sýningu Sóleyjar. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.--------- Á sýningunni Hjartadrottning birtist áhorfendum heillandi hugar- og efnisheimur myndlistarkonunnar Sóleyjar Ragnarsdóttur. Ofurskrautleg málverk og skúlptúrar af ýmsum stærðum og gerðum, fagurlega málaðir veggfletir og sérhannað veggfóður auk sýningarborða með einstöku servíettusafni skapa hér eina heild svo úr verður malerísk innsetning. Sýningin er í tveim hlutum og samstarfsverkefni Gerðarsafns og Augustiana Kunstpark & Kunsthal á sunnanverðu Jótlandi. Sýningarstjóri er Heiðar Kári Rannversson. -------- Gunnþórunn Guðmundsdóttir er prófessor í almennri bókmenntafræði  við Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er einkum samtímabókmenntir frá ýmsum löndum og hefur hún rannsakað og kennt námskeið um sjálfsævisöguleg skrif af ýmsum toga; allt frá bernskuminningum rithöfunda til sjálfstjáningar á samfélagsmiðlum. Minnið í öllum sínum birtingarmyndum hefur verið helsta viðfangsefni Gunnþórunnar undanfarin ár og þá hvernig við festum fortíðina á blað. ---------- Menning á miðvikudögum er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.
24.04.2024 kl. 08:00 - Bókasafn Kópavogs

„Hún skín í hjörtum okkar“

Hugleiðingar um vináttuna eftir börn í fjórðu bekkjum grunnskóla Kópavogs. Verkin, sem eru í formi texta og teikninga, voru unnin að loknum heimsóknum barnanna í Bókasafn Kópavogs í mars 2024 þar sem Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, ræddi við þau um sköpunarkraftinn og vináttuna.Sýningin er á annarri og þriðju hæð bókasafnsins og stendur yfir frá 24. apríl til 12. maí næstkomandi.Sýningin er liður í Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2024. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir hátíðina.
25.04.2024 kl. 17:00 - Bókasafn Kópavogs

Sumardagsdjass með Tónlistarskóla FÍH

Ljúfir tónleikar með framhaldsnemendum af söngdeild Tónlistarskóla FÍH, síðasta fimmtudag hvers mánaðar. Lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli, sveifla og sving, stuð og stemning. Rán Ragnars og Vigdís Þóra Másdóttir koma fram á þessum indælu síðdegistónleikum i sumarbyrjun. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir fara fram á annarri hæð Bókasafns Kópavogs.
25.04.2024 kl. 18:00 - Bókasafn Kópavogs

Bókabeitan og skvísubækurnar

Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir, eigendur bókaútgáfunnar Bókabeitunnar, spjalla um hið frábæra bókmenntaform skvísubækur. Marta og Birgitta hafa sjálfar þýtt fjölda bóka sem falla undir þann flokk og gefið út undir merkjum Bjartar bókaútgáfu. Óhætt er að kasta fram að þessi flokkur bóka er einn sá vinsælasti á bókasöfnum landsins og veitir glæpasögum verðskuldaða samkeppni. Velkomin á langan fimmtudag. Léttar skvísulegar veitingar og bleik stemning.Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
25.04.2024 kl. 13:00 - Bókasafn Kópavogs

Dúfur og dirrindí | Sumarsmiðja

Fögnum saman upphafi sumars í yndislegri dúfusmiðju. Gerum saman litlar og fallegar dúfur úr silkipappír, stenslum, spotta og priki. Að smiðju lokinni verður hægt að taka dúfuna með sér heim og leyfa henni að flögra um loftin blá. Smiðjan hefst klukkan 13 og varir til klukkan 15. Á þeim tíma er hægt að koma hvenær sem er og dvelja eins lengi og hentar hverjum og einum. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Smiðjan hentar vel fyrir börn og fjölskyldur.
25.04.2024 kl. 16:00 - Salurinn

Sumargleði Bíbíar og Mandólín

Brynhildur Björnsdóttir söngkona með meiru býður til söngtónleika í fordyri Salarins þar sem hún býður sumarið velkomið ásamt vinum sínum Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleikara og stórgleðisveitinniMandólín. Á efnisskrá eru uppáhaldslög úr öllum áttum. Við sögu koma smellir eftir Spilverk þjóðanna, Moses Hightower, Kate Bush, Astor Piazzolla og Kurt Weill svo nokkur séu nefnd.
25.04.2024 kl. 15:00 - Gerðarsafn

Krakkaleiðsögn á sumardegi

Örn Alexander Ámundason myndlistarmaður býður upp á krakkaleiðsögn um sýningar Sóleyjar Ragnarsdóttur og Þórs Vigfússonar, Hjartadrottningu og Tölur, staðir sem nú standa yfir í Gerðarsafni.Aðgangur á leiðsögnina er ókeypis og krakkar og fjölskyldur hjartanlega velkomin. ------Á sýningunni Hjartadrottning birtist áhorfendum heillandi hugar- og efnisheimur myndlistarkonunnar Sóleyjar Ragnarsdóttur. Ofurskrautleg málverk og skúlptúrar af ýmsum stærðum og gerðum, fagurlega málaðir veggfletir og sérhannað veggfóður auk sýningarborða með einstöku servíettusafni skapa hér eina heild svo úr verður malerísk innsetning. Á sýningunni Tölur, staðir má sjá og upplifa nýja innsetningu eftir myndlistarmanninn Þór Vigfússon sem hann vinnur sérstaklega með sýningarsal Gerðarsafns í huga. Sýningin samanstendur af fjölda jafnstórra ferninga úr lituðu gleri sem dreifast um veggi salarins eftir ákveðinni reglu og mynda víxlverkun milli forma, lita og rýmis. Við fyrstu sýn virðist sýning Þórs lítillát og óhlutbundin innsetning sem leiðir hugann að verkum í anda geómetríu eða naumhyggju. En þrátt fyrir sparsamt efnisval og framsetningu má við nánari athugun greina flókna hugmyndalega nálgun á sjálft skúlptúrformið.
25.04.2024 kl. 15:00 - Gerðarsafn

Krakkaleiðsögn á sumardegi

Örn Alexander Ámundason myndlistarmaður býður upp á krakkaleiðsögn um sýningar Sóleyjar Ragnarsdóttur og Þórs Vigfússonar, Hjartadrottningu og Tölur, staðir sem nú standa yfir í Gerðarsafni.Aðgangur á leiðsögnina er ókeypis og krakkar og fjölskyldur hjartanlega velkomin. ------Á sýningunni Hjartadrottning birtist áhorfendum heillandi hugar- og efnisheimur myndlistarkonunnar Sóleyjar Ragnarsdóttur. Ofurskrautleg málverk og skúlptúrar af ýmsum stærðum og gerðum, fagurlega málaðir veggfletir og sérhannað veggfóður auk sýningarborða með einstöku servíettusafni skapa hér eina heild svo úr verður malerísk innsetning. Á sýningunni Tölur, staðir má sjá og upplifa nýja innsetningu eftir myndlistarmanninn Þór Vigfússon sem hann vinnur sérstaklega með sýningarsal Gerðarsafns í huga. Sýningin samanstendur af fjölda jafnstórra ferninga úr lituðu gleri sem dreifast um veggi salarins eftir ákveðinni reglu og mynda víxlverkun milli forma, lita og rýmis. Við fyrstu sýn virðist sýning Þórs lítillát og óhlutbundin innsetning sem leiðir hugann að verkum í anda geómetríu eða naumhyggju. En þrátt fyrir sparsamt efnisval og framsetningu má við nánari athugun greina flókna hugmyndalega nálgun á sjálft skúlptúrformið.
27.04.2024 kl. 12:00 - Gerðarsafn

Barnamenningarhátíð í Kópavogi

Brúðuleikhús, kórpartý, krakkajóga og lúðrastuð. Verið hjartanlega velkomin á Barnamenningarhátíð í Kópavogi, laugardaginn 27. apríl. Við erum komandi kynslóðirFjörug tónlistardagskrá í Salnum 12:00 – 12:40Krakkakór Kársness, Stórikór Kársness og Skólakór Kársness 13:00 – 13:25Skólahljómsveit Kópavogs ásamt Sölku Sól (á útisvæði) 13:30 – 13:50Barnakór og Skólakór Smáraskóla 14:00 – 14:25Kór Hörðuvallaskóla 14:30 – 14:50Kórar Hörðuvalla-, Kársnes- og SmáraskólaSérstakir gestir eru Íris Rós og Kjalar 15:00 – 15:45Litlikór Kársness, Stórikór Kársness og Skólakór Kársness 16:00 – 16:30Marimbasveit Smáraskóla Smiðjur og sprell 13:30 – 15:30Kórónusmiðja (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð) 13:30 – 15:30Málað með mold (á útisvæði) 14:00 – 14:30Krakkajóga (á útisvæði) 14:30 – 16:30Brúðusmiðja (Gerðarsafn) Sýningar Geimveruslamm Vídeóverk og brúðusýning eftir nemendur af unglingastigi Kársnesskóla. (Gerðarsafn)„Hún skín í hjörtum okkar“Hugleiðingar um vináttuna eftir börn úr fjórða bekk í grunnskólum Kópavogs (Bókasafn) Í öðrum heimiSýning á ljóðum sem bárust í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs 2024 (Bókasafn) Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir Barnamenningarhátíð í Kópavogi
27.04.2024 kl. 13:00 - Gerðarsafn

Leiðsögn listamanns og sýningarstjóra | Þór Vigfússon og Heiðar Kári Rannversson

Verið velkomin á leiðsögn Þórs Vigfússonar og Heiðars Kára Rannverssonar sýningarstjóra laugardaginn 27. apríl kl. 13:00 í Gerðarsafni. Eftir leiðsögnina í Gerðarsafni verður gengið saman yfir í Y gallerí í Hamraborg þar sem leiðsögnin mun halda áfram en þar eru einnig til sýnis verk eftir Þór. Á sýningunni Tölur, staðir má sjá og upplifa nýja innsetningu eftir myndlistarmanninn Þór Vigfússon sem hann vinnur sérstaklega með sýningarsal Gerðarsafns í huga. Sýningin samanstendur af fjölda jafnstórra ferninga úr lituðu gleri sem dreifast um veggi salarins eftir ákveðinni reglu og mynda víxlverkun milli forma, lita og rýmis. Við fyrstu sýn virðist sýning Þórs lítillát og óhlutbundin innsetning sem leiðir hugann að verkum í anda geómetríu eða naumhyggju. En þrátt fyrir sparsamt efnisval og framsetningu má við nánari athugun greina flókna hugmyndalega nálgun á sjálft skúlptúrformið. Hér veltir listamaðurinn meðal annars fyrir sér þeim fagurfræðilegu möguleikum sem leynast í gleri og öðrum iðnaðarefnum og hvernig sjónræn og hárnákvæm tæknileg útfærsla þeirra getur haft mótandi áhrif á skynjun áhorfandans. Þá grundvallast sýningin á þeirri hugmynd að ekki aðeins framsetning heldur einnig staðsetning listaverks, það umhverfi sem verkið birtist í hverju sinni, hafi bein áhrif á upplifun og merkingarsköpun áhorfenda; ekki aðeins af verkinu sjálfu heldur einnig rýminu sem það umlykur. Sýningarstjóri er Heiðar Kári Rannversson. Ljósmynd: Sigríður Rut Marrow.
Fleiri viðburðir

Hafðu samband

 

Hringdu í 441 0000

ef þig vantar aðstoð, svör eða nánari upplýsingar. Opnunartími Þjónustuversins er mánudaga - fimmtudaga frá 8 - 16 en frá 8 - 13 á föstudögum.

Hringja

 

Sendu okkur póst

Við tökum á móti ábendingum og fyrirspurnum í gegnum tölvupóst. Smelltu á merkið hér að ofan til að senda okkur póst.

Senda póst

 

Þarftu að senda viðkvæm gögn á öruggan hátt til Kópavogsbæjar

Notendur geta sent Kópavogsbæ viðkvæmar skrár eftir að þeir hafa auðkennt sig með rafrænum skilríkjum.

Gögnum er eytt úr Signet transfer eftir að viðkomandi hefur sótt þau.

Signet